Don Vito
Investment Banks
07.08.2007 09:25:08 / victor blær

Flutningur á síðu/

Hey bendejos og aðrir sem halda ekki með Liverpool. Nýja slóðin á síðunni er  www.victorblaer.com

Svo ég vil ekki sjá neinar 100 + heimsóknir í dag, got it?


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 11:43:27 / victor blær

We were young we were dzindzin dzin something in the sun. Síðasta færslan. Farinn á www.victorblaer.com. Arrivaderci suckers.

Þá er komið að því . Síðasta færslan mín hér á blog.central.is/victorblaer. Ég og þessi síða höfum upplifað margt saman. Ekki ólík kærustu pari sem hafa farið í gegnum súrt og sætt , rifist heiftarlega eins og þegar ég skrifaði fyndustu færslu allra tíma og þegar ég ýtti á "birta færslu á vef" , gerðist ekkert. Ég var of lengi að skrifa meistarastykkið og vistaði ei það sem ég ritað hafði. Ég grenjaði úr mér augun í marga daga og hugaði að því að slíta samveruna þá þegar.

En ástin verður ekki fangað í fögrum ljóðum , súkkulaði molum (hún kemst nú ansi nálægt því ef súkkalaðið er gott og þiggjandinn er ég..nei..victor..vertu sterkari en þetta. Ekki láta kaupa þig með tælandi svarta hunangið..eins og fjöldinn allur af sírenum að kalla mig til sín..ég get ekki staðist freistingunni..) eða yfirlýstum ástarjátningum karla og kvenna sem enginn innistæða er fyrir. "Þú hefur farið yfir heimild þinni til að segja "ég elska þig. Vinsamlegast leggðu inn meiri ást. " Ef fólk fengi kvóta, ástarkvóta. Allt er þegar þrennt er, 3 er góð tala. Hún er prímtala. Já, þú fengir þrjá ástar sénsa. Eftir það, þyrftirðu að kaupa þér meiri ástarkvóta, kannski af ljótu fólki. Nei, af fólki með meiri reynslu og meiri tilfiningagreind. Svo gætum við látið kvótan ganga kaupum og sölum og jafnvel haft skilvirkan markað uppi og keypt og selt hlutabréf. Ég er viss um að allir mundi græða eins og kauphöllin virðist gera.

Ástin er tilfinning. Hjartað tekur kipp bara við tilhugsunina um manneskjuna. Og það eftir að hafa verið með manneskjunni lengur en eina sjónvarps séríu. Ég og þessi síða höfum séð ýmislegt saman. Hún hefur verið til staðar sem tjáningarmiðill minn í langan tíma. Ég elska hana.

Síðan beið mín eins og tryggur hundur sem allt fyrir mig mundi gera. Þau ykkar sem hafa ekki átt hund og upplifað tryggðartilfiningu hunds skilja þessa samlíkingu líklegast ekki. Eins og þegar Stormur hundurinn minn sem var hálfur husky og hálfur scheffer ætlaði að ráðast á eldri bekkinga sem voru að leggja mig í einelti í Norður Karolínu. Hann hoppaði yfir girðinguna í garðinum, hljóp yfir götuna eins og djöfullinn sjálfur í hundalíki og gerði sig líklegan til að rífa í sig nokkra ógæfis unglingspilta sem voru að stríða 8 ára gömlum íslenskum strák sem var farin að skæla. Ég slapp með skrekkinn og ég og Stormur fórum heim og er ég horfði í augun hans skein væntumþykkjan sem hann bar til mín og mér leið eins og ég væri á toppi tilvernunar. Enginn gat gert mér neitt, því ég átti Storm og hann var sterkasti og besti hundur í heimi.

Síðan hefur stundum leikið hlutverk therapista, er ég hef ekki geta talað um eitthvað við neinn, hef ég þótt undarlega sé, getað komið með einkahúmor sem aðeins ég fatta, varðandi það sem er að hrjá mig þá stundina, og af einhverjum ástæðum hefur það létt mér lífið og látið mér líða betur. Ég er lokuð manneskja að eðlisfari, þvi verður ekki neitað. Það tók mig langan tíma að geta treyst mínum nánustum vinum fyrir tilfiningum mínum og bara jafnvel fyrir sjálfum mér. Victor, án neinnar (ok, næstum því neinnar , hehe.) grímu. Berskjaldaður. Þannig hef ég getað verið með síðuna.

Við höfum bullað , og bullað...og bullað meira. Komið með rógburð um flest og alla sem ég þekki til. Logið eða frekari sagt skáldað margt. Þessi síða hafði ekkert sérstakt takmark þegar ég byrjaði með hana. Aðra en að ég vonaðist til að hustla út á hana. Hversu sorglegt er það, þegar maður vonast til að hitta draumakonuna í gegnum heimasíðuna sína?

My homeboys þekkja húmorinn minn og okkar strákana. Það hefur verið mikið af einkahúmor. Sem leiddi af sér enga misskilninga þegar það voru bara ég og the guys að lesa síðuna. En þegar ókunnugir fóru að hnýsast þá fóru skemmtilegir hlutir að gerast.

"Sóley Kaldal er fáviti" færslan

Þetta var einkadjók sem byrjaði með strákunum sem fóru á ProTour (árleg skemmtiferð til Jóns Arnórs körfuboltamans og golfara hvar sem hann er staddur í heiminum). Einhver úr hópnum orðaði fáranleika á þann veg að segja " að það er bara eins og að segja að Sóley Kaldal sé fáviti!". Sem er auðvitað svo fjarri sannleikanum að það verður absurd.

En, einvher vinkona Sóleyar, las bara titilinn á færslunni og hringdi í Sóley og sagði " yo biatch..veistu hvað (ok hún sagði sæl vinkona , en hitt er satt) Victor skrifaði, hann kallaði þig fávita!!"

"Ég og Sóley eigum von á tvíburum"

Þessi segir sjálft. En ef þið þekkið mig og hana ekki, gætu þið trúið þessu. Sóley er systir eins besta vins míns og yrði ég sennilega myrtur við það eitt að líta á hana þeim augum. Sem stoppar mig og Snata samt ekkert að grínast með það hægri og vinstri. Sóley á auk þess frábæran kærasta sem heitir Kobi og er með læri jafn þykk og kálfarnir mínir. Og síðast en ekki síst, vil ég ekki verða faðir fyrir en ég hef lokið framhaldsnámi og með allt klárt. Sonur/dóttir mín verða sko enginn lausaleiksbörn.

Hérna er nokkrar gamlar færslur

Febrúar 2006. Sjáið Valda þarna fyrir aftan. Sérstök mynd.

Einhver spurði hvort ég væri með krippu. Ég lét eins og það skipti mig ekki máli. Svo grét ég mig í svefn um nóttina.

jarðeðlisfræði hetjan mín Hjálmar og ég

Crunk Partyið góða

ég týndi klútnum hans steinars og sé ennþá eftir því

ég og kærastan mín þá..

þegar ég laug því að ég og Garðar thor værum byrjaðir saman.takið eftir flotta skegginu mínu.

Meiriháttar mynd.. Mannstu eftir þessu Steinar ?

fáranlega fyndin dagur...bíómyndastuff... raunveruleikinn er stundum ótrúlegur...Markús Máni, Victor Blær, Kristín, Davíð, Elfa og Ylfa.

Gaman að segja frá því, að þarna var Kristín ennþá í grunnskóla. Ég og hún vorum að skjóta eitt atriði saman, sátum þétt að hvort öðru og hún var pinu stressuð. Svo ég reyni að gera þetta léttara fyrir hana með smá tjitt tjatti..og segi m.a. hvað á að gera í kvöld, bíó eða bara chill? Og hún svarar...vandræðalega og hvíslar.."..öö..ég er sko að passa í kvöld þannig ég kemst ekki , seinna kannski?"

gardínur..

snilldar kvöld með félögum heima hjá gerta..þetta er jón sem liggur ofan á öllum

sokka fetish Skallanns (sorry helgi minn..)

Snati braut tréið sem sést þarna í bakgrunni stuttu síðar

ég komst á kallarnir.is

óli skálaði í snakk skál..eggert bara alveg sáttur

ég setti þessa mynd á síðuna, og stefaní frænka eggerts kommentaði í fyrsta sinn á síðuna mína og sagði stopp, hingað og ekki lengra. Tepru genið virðist því ættgengt í þessari familu

06.06.2006 fór í skemmtilegu húsafells ferð

ég kynnstist Jessicu Alba

Eggert cuz náðist á dansiballi að dansa með glowstick..(u know æ luv u..eggi)

ursula amma átti afmæli (mynd frá gamlárskvöldi)

ég ritaði grein í mogganum sem andsvar við danske bank sem hét "Morgunblaðið og viðbrögð fjármálamarkaðarins" (góða myndin)

29.03.2006 10:11:06

R.I.P. Eilífur "Góbi" Hammond f. 23 desember 1979 d. 27 mars 200.

Án efa mesti sorgardagur minn síðan skilnaður mömmu og michael pabba. Gobi lést við störfum á Kárahnjúkavirkjun.

Horfi á þessa mynd dögum saman til að hressa mig við. Það virkar.

Fæ þessa mynd af tískó , góðu og konu tísko...yndisleg

bróðir mömmu sem er sjómaður tók þessar myndir

 

Steinar og ég að gangi niður laugaveginn. Óli var í fýlu

Ég flutti inn til Úrsulu. Uppúr hófst stríð milli hennar. Sem hún vann. Því þegar við fórum út meðal almennings saman, sagði hún alltaf hátt svo allir heyrðu til " Afhverju ertu svona vondur við mig ungi maður?!!?"

hún píndi mig

ég sendi stelpu "gefðu mér annan séns " bréf. Hún sýndi hálft ísland. Mér fannst það lélegt. Fyndið í dag.

ég hitti þessa stelpu, varð dolfallinn. Fékk aldrei að vita hvað hún heitir.

feitikallinn bað mig um að pósa..helvetes feiti kall ..lol

óli gifti sig

ég lærði á gítar

snati sem batman

ég og ursula þökkum ykkur samveruna lesendur góðir

þessi mynd var tekin í partínu hans jóns viðars. Ekkert merkileg nema fyrirþær sakir, að þegar ég verð forstjori veit ég að myndin verður grafin upp. He he.

snati líkti mig við bin laden . hélt síðan ég hefði farið i fýlu og var alveg miður sín.

jón minnir mig á Ingu litlu frænku

Steinar pantaði sér breezer á barnum eins og vanalega..og hjalti var ekki sáttur við þjónustuna

ég fann tvífara James Dean..Arnar frændi

sumir dönsuðu upp á bar borðinu á prikinu

ég eyddi mörgum kvöldum með úrsulu , eldaði meirisegja bjúgur með uppstúf sem er uppáhaldsmaturinn minn

Árni graffari fór til Finlands í skiptinám, en þessi mynd er frá ítaliu.

djammaði með waldo..og reyndi ennþá að pulla skeggið..óli sagði mér að raka það af.. ég var að fýla það..

Steinar sást æ oftar með rauðan breezer. kemur ekki lengur á óvart

Bjarni og Tinna eignuðust frábæran lítil strák , Baby B. Ekki það að ég þoli börn.

Steinar og Soffía ófrísk , og Snati og Góða.

Ég varð ástfanginn af Adriana Lima. Sem er ..da bomb.

 

Ég þakka ykkur öllum fyrir samfylgdina. Ég og síðan skiljum sátt. Ég mun héðan í frá halda áfram að rugla, plata, ljúga, tjá, fræða og pæla á síðunni www.victorblaer.com.

Victor eldri

og Victor Blær jr. Þakka fyrir sig.

In the end we are all separate , our stories, no matter how similiar , come to a fork and diverge. We are drawn to each other because of our similarities, but it is our differences we must learn to respect.

In my end is my beginning-Ts Elliot.

kær kveðja vinir og ókunnugir

Victor Blær.

 


 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 14:34:09 / victor blær

It's the final countdown

Þá styttist í að ég hætti með þessa síðu.  Blog.central.is er bara fyrir stelpur á aldrinum 10 til 29 ára. 

Finnst pínulitið eins og ég sé að fara hætta með kærustunni minni..skrítvín..er ekki laust við smá sorg í hjartanu mínu.  En nýja kærastan á betur við mig held ég.  Ég er samt með hræðslu við breytinguna, en maður vex ekki sem einstaklingur án þess að ögra sjálfum sér og setja sig í óþægilegar nýjar stöður.  Dr Phil segir það amk.   Elskan...ég held að þetta sé bara ekki að ganga...en..eins og einhver sagði við mig, maður verður að rugga sjálfsalanum soldið áður til að fella hann....


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 19:09:55 / victor blær

Þjálfari KR rekin og það kom á óvart..plús atburðir helgarinnar

Gef Jón Arnóri plús í kladdann fyrir eldamennsku á laugardaginn, þó móðir hans átti eflaust sinn þátt í þessu líka. Jón bauð semsagt í grill og mættu :

Gummi stóri (sem er ekkert svo stór lengur), Helgi Baðvörður, Brynjar (sem var með umboð frá Booga litla), Jakob körfuboltamaður, Ólafur Már Ægisson, Páll Axel , og ég. Jón stóð sig frábærlega í að bera frábæran mat ofan í mannskapinn, alls konar kjöt, frábærar kartöflur og ekta ítalskt salat. Svo var þessu skolað niður með íssköldum Corona. Bravó Nonni.

Eftir matinn gladdi Eggert okkur með nærvinnu sinni, og stuttu síðar létu Valdimar "O.G. Waldo" og Steinar "S-luv" Kaldal, sjá sig. Nokkuð hóflega var drukkið en þó þannig að menn færu út álíka mjúkir og barnarassar. Sérstakur heiðursgestur kvöldsins var án efa heimspekingurinn Ólafur Stefánsson og frú.

Eins og vanalega var förinni heitið niður í bæ og skipt niður í leigubíla . Endaði ég á að fara með Stefánssynum og eiginkonu Óla downtown (helvítis, alveg stolið úr mér hvað hún heitir, einstaklega myndarleg og geðþekk kona þar á ferðinni..my bad). Reyndar áður en við fórum , var ég þess heiðurs aðnjótandi að upplifa trúnó stund familiunar, er Stefán sjálfur og misses, komu 50% mjúk inn í hús. But what happens at....the place formarly known as Selvolgsgrunn, stays at the place formarly known as Selvogsgrun.

Bæjarferðin var einstaklega skemmtileg þar sem við skemmtur okkur vel og ég þakka bara samveruna dudes.

Kvót dagsins á eflaust Teitur , fyrrverandi þjálfari KR, sem sagði " ég átti meira von á þessu í upphafi tímabilsins". Teitur , við upphafið voru þeir ekki í síðasta sæti. KR með 7 stig og markatöluna 9-17. Algjörir wankers sem eiga ekki skilið að klæðast svörtu og hvítu.

Að verslunarmannahelginni.  Ætla halda mig annaðhvort heima eða í einhverjum sveitavöll að leika golf.  Þakka fyrir að pakkið sem fer til Vestmannaeyja skulu skila Reykjavíkurborg eftir í höndum mínum og Stewy úr Family Guy..yes.. 

Svo vil ég bara koma á framfæri að  ég skoða bara klámmyndir af greindum konum, konum sem hafa stúdentspróf og eru vel að sér í stjórnmálum.

kveðHA?

Victor Blær.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 10:55:23 / victor blær

damnit maður

Sumir eru lítt hrifnir af því að maður sé að "hot linka" . En fyrir ótölvuvætt fólk þá þýðir það að ég set inn addressu á myndina, á mína síðu, sem vísar í mynd sem er birt á annari siðu.  Þetta tekur breiðbandsvídd frá þeim aðila sem hýsir myndina.

Og núna get ég ekki uploadað myndirnar því eldveggurinn (veggur sem búið er að kveikja í) vill ekki leyfa mér að tengjast í gegnum ákv port (port : nafnorð-maður sem klæðist stórum buxum sökum stórs pungs) 

laga þetta í kvöld pöngs.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 20:43:48 / victor blær

Vati elskar

 

Í byrjun júní fórum við stæðilegur hópur kvenna og karla í húsafell. Flest þeirra höfðu parað sig saman ef ekki öll, en ég og maður er nefndur Vati vorum útundan eins og svo oft áður. Menn sem lifa á jaðrinum og valda plasma eigundunum vandræði við að skilgreina sig. Menn eins og Vati sem keyrði benznum sínum frá Húsafelli að Reykjavíkur að lokinni ferð, og neyddi mig til að hlusta á West Side Story og Little Shop of Horrors, þegar mig langaði að breytast í sloth og liggja með hausinn undir kodda. Hér er mynd af Vata við barnafossa. Vati er besta Kristján Jóhannson eftirherma sem ég veit um

Vati að komast í gírinn. Men, lock your daughters up.

Ég held að við sem séu svo lánssöm að njóta eftirrétta meistarstykki Vata ár, eftir ár, getum án efa kallað eða frekari sagt veitt honum verðskulduð verðlaun sem séni í dessert matargerð. Sér í lagi eftir hvernig hann bar dessertinn fram síðast.

Vati leyfði mér að klifra niður að fossinum

svo beit ég í sítrónu

Kung Fu posing er inn. Ekki láta Hrottan , Skallann , Bónerinn, Loga Gun og Boogie plata ykkur . Það er ekki inn að pósa með haglabyssu og í hlýrabol á leiðinni á Höfn í Hornafirði. Kung Fu posing er so hot right now...its so hot

Annars fór ég að slá upp í básum hjá GR og komst að því að ég hefði alveg eins getað verið að slá með vöfflujárn og munaði minnstu að ég gefið einhverjum krakka talibana einn á hann fyrir að hlæja að mér.."dont you know i´m loco..esse..vvsiishs"


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 14:05:19 / victor blær

Slæður eru mikilvægar fyrir flugfreyjur þvi þær eru svo oft með sogbletti

Erfiður dagur framundan.  Eftir gott kvöld með Ívari frænda og Söndru á föstudaginn , hélt ég mér heima í gærkvöldi og horfði á "Music and Lyrics" með Hugh Grant og Drew Barrymore.  Yfirleitt horfi ég á myndir eins og Universial Soldier 3 en það voru engar þannig myndir inni , nema Rambo 4 , og ég er búinn að sjá hana 4 sinnum og ég er með smá issue í gangi að sjá aldrei myndir oftar en talan í titilinum segir til um.

Í dag er ég að velta fyrir mér að taka til í da crib, þvo þvott, fara til Ursúlu ömmu og neyða hana til að versla í matinn.  Sver þaðl, ef hún væri tvítug hefði ég haldið að hún væri haldin anorexíu.  Við skemmtum okkur yfirleitt vel í þessum verlsunarleiðangrum, skiptumst á að skjóta svívirðingum á hvort annað sem endar oftast með þvi að hún kalli mig "homma" eða segir mér að þegja.  

Að loknu verlsunarferðinni, förum við heim til hennar og ég geng frá á meðan hún segir mér sömu sögu af kisunum sínum tveimur "helter " og "skelter" (ok , þeir heita kisi og kondu kondu, en eru svo miklir ógeðskettir eitthvað)  sem hún sagði mér áður en við fórum , og ég reyni að vera jafn áhugasamur.  Svo skýt ég hana að hún nái sér aldrei í mann með sígin brjóst og mæli með lýtaraðgerð til að bæta úr skák.  Sem hún tekur vel undir en svarar um hæl að það sé betra fyrir konur að vera með sígin brjóst en strák að vera með lítinn undir sér.  Ursula 1, Victor 0.  Þá brotna ég yfirleitt niður og byrja að skæla.

Brittish Open kallar ásamt flatkökur og kókomjólk..mmm..arrivaderci

Les Chronicles des Victor et Blær depuis 1980.

post scriptum: shit..skólinn að fara byrja eftir mánuð.."omfg"


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 00:23:33 / victor blær

Snorri is Maverick, Vito is Iceman...together..the're each others wingman

Ég lá upp í sófa í gær þegar ég fékk neyðarkall frá vængmanninum mínum, Snorra. Stundum betur þekktur sem Dabb. Þið ráðið hvað þið kallið hann.

"Mad daddy, hvað ertu að gera?"

"ligg bara upp í sófa."

"Viltu koma að fljúga?"

"Er á leiðinni."

Það þarf ekki mikið til að fá mig út úr húsi enda hata ég að hanga heima. Verð að vera á ferðinni. Hef virkilega gaman af adrenalíni og hlakkaði mikið til flugferðarinnar

Mætti upp í Reykjavíkurflugvöll stuttu síðar og þar tók á móti mér rússnesk orrustuþotu æfiingaflugvél, og lítill tvífari Viggo Mortensens (Snorri). Jakinn. 9 cylindra 350 hestafla vél sem strákarnir fengu atvinnulistaflugmann sérstaklega frá Rússlandi til að kenna sér að fljúga hana.

Svo sá ég "experimental" á hliðinni. Traustvekjandi.

En bara til að gæta fyllsta öryggi, fékk ég fallhlíf. Ef ég skyldi nú detta út með gluggan opinn.

Snorri tilbúinn í flugsýninguna

Maður togar í járn draslið til að opna hlífina ef staticið klikkar

Snati búinn að festa mig inn. Hrein unaðsleg stund að finn hann double tjekka festingarnir mínar..með hendurnar á milli lærana á mér..mmm

Mælaborðið "mitt"

Tilbúinn að láta hræða úr mér líftóruna

Maverick who?

Ég og Snorri skemmti okkur konunglega. Hann tók hringi, flik flak, ská niður afturábak, bara nefndu það. G þyngdarhröðunar mælinn sýndi eftir ferðina mest -2.6 G , og+5 G. Og ég veit að góðir rússibanar geta náð 4 amk, en það er aðeins í örskammastund, þessi G sem Snorri tók endust lengi. Var farinn að gera eins og atvinnuorrustuþotu flugmenn gera til að berjast á móti áhrifum G þrýstings. Spennir alla vöðva í stutta stund, og endurtekurr. Rassinn, lærinn hendurnar , bara allt með stuttu millibili. Guð blessi Discovery , annars er ég hræddur um að það hafi liðið yfir mig.

Einnig vil ég þakka ónefndan aðila sem sendi mér email frá vísir, en sá sér ekki fært að  láta nafn síns getið

"Þér hefur verið bent á þessa grein á Visir.is:

Sofið fyrir utan Nexus í nótt

Skilaboð sendanda:
Þarna hefurðu deit fyrir helgina..

Smelltu hér til að sjá greinina: http://www.visir.is/article/200770719103"
 
(fréttin er um 3 17 ára stelpur að gista fyrir utan nexus að bíða eftir Harry Potter.  Persónulega finnst mér svoleiðis stelpur rúlla.  Stelur , call me, eftir 10 ár) 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 22:06:09 / victor blær

Fimmvörðuháls..to go ..or not to go

Manni bregður óneitanlega í brún, þegar spyrst af vönum leiðsögumanni að týnast með hóp af ferðamönnum um fimmvörðuhálsinn (ég verð svo stoltur af sjálfum mér þegar mér tekst að skrifa þetta orð rétt). Vitandi það að ég er sennilega óratvissasti maður Vetrabrautarinnar fyrir utan Agiteraða Þúsundfætlan með lappir sem allar hafa sjálfstæða hugsun, en það hefur ekki spurst til hennar lengi, svo mig grunar að ég hafi aftur vinninginn þar.

Hef villst í þoku upp á Mývatnsöræfina með talstöð, á svæði þar sem það þurfti að keyra í rúma 6 tíma til að komast að og ekkert NMT samband. Öðru nær þá á ég erfitt með að gera greinarmun á Laugarásbíó og Regnboganum. Ég er reyndar alltaf svo skyhigh ..sem minnir mig á þessa setningu úr "Superstar"

(teacher reading attendance)

Michael?

Michael : "Here"

Stacy?

Stacy : " Here"

Victor? ...Victor?

Victor: " Here".."I´m so high I dont even know where here is.."

Ég , Stones og jafnvel Snati ætlum að leggja land undir fót á föstudaginn. Þeir halda að við séum að fara í náttúruskoðunarferð ..(pssss...ég er að fara skoða virkjunarmöguleika..ætla reyna að múta þeim með tilhugsunina um alla peningana og megavöttin..leggja land undir vatn segi ég nú bara!). Við förum þrír fimmvörðuhálsinn, (trommhljóð.) Flestir fara þessa leið eitthvað um 8 eða 9 tíma. Þannig við verðum að fara hraðar en svo, en samt gefa okkur tíma til að taka helstu mælingar eins og hæðar þörf á stífluna osfrv.

Eftir gönguna , geri ég ráð fyrir að við keyrum á næsta golf völl og spilum allan daginn. Ef þetta er ekki draumarhelgi, þá veit ég ekki hvað er.

Tvífarar

Jonni bróðir

Jason Statham

Haltu áfram að skemmta þér úti Steindór, og skilaðu kveðjur til allra

Takið annars eftir þessa mynd.  Hvað er athugavert við annað?  Menn spyrja sig.  Takið eftir því hversu ánægður Stones er með Breezerinn, meðan angistarsvipurinn á mér leynir sér ekki, menn að planta einhvern helvítis Breezer á Vito.  Segi bara uss, og jafnvel svei.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 00:55:55 / victor blær

to the rest of the world, youre just one person, but to one person , you are the world

 

Þá átti ég frábæra helgi og vil ég endilega þakka ykkur öllum sem komu nálægt fyrir samveruna.

Eins og allir vita auðvitað, skipulagði Bjarni handboltamaður með meiru, sem ég er að fara heimsækja næsta sumar á St. Tropez sem er á frönsku riveríunni, flott golf mót á Hvammsvíkinni. Það var tekið rausnarlega á móti okkur , með teig gjöfum , boltum , derhúfum og fleira.

Mótið var spilað Texas Scramble style, þar sem tveir eru saman í liði, og báðir slá boltana sína, og svo er alltaf valinn besti boltinn. Það var skipt í 2 styrkleika og dregið á slembinhátt síðan, hverjir tveir yrðu saman. Skemmtileg tilviljun réð því að ég og Bjarni drógumst saman í lið. Ekki eins skemmtilegt var fyrir að Steinar að lenda með Bjarna Þór í liði ,ekkert persónulegt Bjarni minn, þú ert eðal blóð , en þegar partnerinn þinn tekur upp púttara við 150 metra færi þá ertu í vondum málum.

Fyrsta holan hjá mér og Bjarna var skrautleg vægast sagt, og síðustu tvær ekkert spes. Hinar 6 á milli, vorum við fínir, pöruðum og tókum 2 bogey , minnir mig. Enduðum í 3 sæti á 45 höggum og fengum út að borða á búlluna.......naaaaa---ice..

Steinar og Bjarni þór..eða i raun og veru bara steinar, fór á 52 ... en þetta voru fínar 52, og gaman að sjá leikinn hans batna.

Eftir leikinn tókum við fótbolta á fínum velli. Nema einhver geðsjúklingur ótengdur hópnum, annst sniðugt að tjalda beint við annað markið, og kvartaði síðan yfir þvi að við vorum að spila þarna og þegar einn boltinn fór framhjá markið og að tjaldinu þeirra, tók maðurinn boltann og sparkaði honum lengst í burtu. Greinilegt að það er ekki í lagi með suma, sérstaklega vegna þess að það voru börn þarna í kringum okkur. Sumir úr hópnum urðu full æstir og hefðu mátt vanda hegðun sína betur og leggjast ekki niður á sama plan og þessi maður.

Fyrir utan þennan svarta blett, var leikurinn fjörugur og skemmtilegur. Ber helst að nefna að Steinar spilaði í Air Force ones, ég var klobbaður svo svakalega af Bjarna Fritz að það var ekki einu sinni fyndið, og já..ég skoraði flottasta skallamark..allra tíma...og já strákar, ég mun tala um þetta næstu árín.

Ég , Hansi og Steinar keyrðum síðan rólega í bæinn eftir frábæran dag, þreyttir en glaðir. Fannst sérstaklega huggulegt að hlusta á Steinar og Hansa ræða um tilfinguna að verða faðir og um ágæti ófrískra kvenna..(brjóstin stækka er mér sagt)

Ég náði að leggja mig í 10 mín þegar ég kom heim, vaknaði við að ég hélt að það væri verið að dingla, þá hafði Hansi vera að dingla bjölluna eins og ástsjúkur unglingur sem neitaði að gefast upp. Svaraði loksins og við fórum í partí og grill til Tomma í árbænum. Flott verðlauna afhending , þar sem liðið míns og Bjarna fengum m.a. rauðvínsflösku, sem búið var að opna. Bjarni semsagt vissi í hvaða sæti við mundum lenda og langaði svo í rauðvín með matnum og opnaði hana, en það var samt fyndið að gera grín að því.

Fórum síðan bara allir downtown, ég hitti Gerta og við dönsuðum og fífluðumst eins og 2 lúðar, þar sem ein stelpa lét þau orð falla að eggert væri framtíðar maðurinn hennar...yeah..after u lose about 200 pounds! Hehe..just kiddin. Þessi sama stelpa og vinkona hennar voru með undarlega tilburði , eins og að standa fyrir framan mann, eina fyrir framan hina, fremri stelpan leikur eins og hún sé að keyra trukk og heldur á stýri , meðan hin...æji þetta var bara vírd...greinilega einhver einka húmor sem þeim finnst svaka fyndið. Ég þóttist eiga kærustu frá brazilíu þegar kona gaf sér á tal við mig, mér fannst það fyndið . Hittum hrottann síðar...góður dagur í alla staði og gott geim með eggertivich stefanóvich og síðar öllum hinum úr hópnum.

Næsta helgi ætlum ég og Steinar að reyna við Fimvörðuhálsinn ef veður leyfir..ef ekki þá held ég taki það rólega, amk enginn bæjarferð , langar meira að spila golf og göngur en illa lyktandi skemmtistaðir..

Í beinuframhaldi af því, er myndband/sketch af Rick James að eyðileggja sófann hans Eddie Murphy hér .  Og ég ætla hafa þetta double whammy, með að setja link á remix af happy feet myndinni sett við gangsta rap hér

Rakst á titilinn á færslunni einhverstaðar og fannst hún væmin..en svo væmin að hún varð eigilega svöl..

people say we only use 10% of our brains...i think we only use 10% of our hearts..

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 10:55:56 / victor blær

tónlist

Er að hlusta á í engri sérstakri röð

  1. The Boy least likely to
  2. Lucky lucky pigeons (bara heyrt 3 lög, sænskar stelpur, indý gum pop)
  3. Of Montreal
  4. The Shins
  5. Artic Monkeys (luv em)
  6. Arcade Fire (á erfitt með að fíla þá, er að vonast til að venjast hlustunni)
  7. Timbaland
  8. Cocorosie (GEÐVEIK stelpu band. Hip hop, indý..funk..frumlegt..tjekkið á laginu "japan"
  9. Myth Takes (electric dance.." Break in case of Anything" cool lag)
  10. Emilie Simon-album epuumnenen something kann ekki að skrifa það ; p
  11. M-ward ....verðið að hlusta á þá...karmellu smooth róleg rödd
  12. menomena

Golf i dag...undirbúa sig fyrir morgundaginn...fara á æfingu hjá Mjölni með frakka vini hans Bjarna...glíma..skutla honum í mat..kannski fara með...

á morgun...keppa á gólf moti...spila fótbolta...grilla..sturtu...setja á sig body creme.....grilla meira...Svona eiga sumur ...sumar...sumu...fuck it..svona á sumarið að vera...

Il pleut

Je m'appelle Victor ..et..l'homme est fou...

..."victor...hann skilur hvað þú ert að segja...hann er nýkominn frá frakklandi.."

svo náði þessi frétt athyglinni minni..

 

Með sigri sínum á sænsku nördunum skutust íslensku nördarnir, KF Nörd, upp fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu á heimslista knattspyrnulandsliða FIFA.  Íslenska landsliðið vermir þessa stundina 14896. sæti listans en KF Nörd er nú í 14745-7. sæti ásamt Svalbarða og Latabæ.

Hilmir Rófuson blaðafulltrúi KF Nörd er afar ánægður með stöðu liðsins.  "Þetta er framar okkar vonum, en það var svo sem ekki úr háum söðli að falla fyrir íslenska landsliðið.  Þeir hafa ekkert getað undanfarið og við getum a.m.k. skorað mörk.  Við stefnum ótrauðir áfram" sagði Hilmir, en næst leikur liðið við úrvalslið Ísaksskóla.

Í fréttatilkynningu sem KSÍ gaf út í kjölfar útgáfu FIFA listans kemur fram að sambandið hafi kært stigaútreikning FIFA, enda telur KSÍ að íslenska landsliðið hafi náð mun betri árangri en stigagjöfin gefi til kynna.  Sem dæmi hafi íslenska landsliðið sigrað 2-1 lið Austur-Þjóðverja 1975 og lið Nígeríu 3-0 í vináttuleik 1981. 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 23:40:38 / victor blær

The farmer that grew robots

 

Þessi maður er nýja hetjan mín. Hann heitir herra Wu Yulu. Ég sá hann á youtube og þetta er eitt af töfralegustu sjónum sem ég hef séð. Herra Wu Yulu er bóndi frá litlum sveitarbæ í austur Bejing, sem smíðar robota í frítímanum sínum úr "duct tape", járni sem hann logsýður og notuðum batteríum. Hann lítur á alla robotana sem börnin sín, og hann skýrir þá eftir sig og númerað frá einum til tuttugu og fimm, og þeir líta út fyrir að koma utan úr geimnum.

Númer 5 er eins meters hár róbot í mannsmynd. Svona.."sort of". Númer 5 getur labbað, skipt um ljósaperu, kveikt á sígaréttur og hellt í té bolla. Númer 6 er apalegur vélmenni, með seglaða fætur sem gera honum kleift að klifra rólega upp stál veggi. Herra Yulu hefur líka búið til lítinn vélmenna frosk, og vélmenna "grasshopper" (kann ekki þýðinguna á grasshopper.."yes grasshopper..")

Besta uppfininginn er eflaust númer 25, risa sem getur dregið herra Yulu og konuna hans á markaðinn í litlum vagn. Númer 25 er með risa stórar fætur, augu sem vilja hoppa úr hausnum á honum og hann kallar á Mandarínsku " Hæ, allir, ég er Vagnar Robot", sem meikar víst sense að kalla, en hræðir víst mann og annan ekki vanann að sjá gagandi öskrandi risa vélmenni sem talar kínversku.

Stundum virka vélmenin ekki alveg 100%. Fyrir fimm árum, skammhleypti einn vélmenninn og hann brendi húsið sitt og konunar niður. Annað skipti sprakk notað batterí , og herra wu brendist alvarlega á höndum og andliti og þurfti að vera á spítalnum í nokkrar vikur. Í dag skuldar hann heilan helling eftir að hafa þurft að taka lán til að endurbyggja húsið sitt, og til að borga spítala reikningana og viðbóta lán til að borga fyrir fleiri vélmenni. Á síðasta ári, þurfti hann að selja einn af vélmönunum sínum, sem hann lýtur á sem barnið sitt, sem er soldið sorglegt.

Hann á líka alvöru fjölskyldu sem og robota fjölskyldu. Konan hans, Dong Shuyan, virðist búin að ná heimspekilegu jafnvægi yfir því að maðurinn hennar hafi brennt húsið þeirra niður og að hafa steypt familuna í skuldir. "þegar við giftum okkur, vöruðu allir mér við að hann mundi hugsa meira um vélmennin sín en mig" sagði hún, "en á hin bogin þá drekkur hann ekki né eltist eftir annað kvenfólk". Reyndar virtist hún vera soldið pirruð yfir því að herra Wu hafi kveikt í nýja eldhúsinu hennar.

Ég vona að ég geti séð einn af vélmönnunum hans í alvörunni , ég held að við gætum orðið vinir eða ég gæti fengið kannski svona grasshopper vélmenni. Ég held að það gæti verið gaman. Þið getið séð heimildarmyndina hér http://www.youtube.com/watch?v=Y4LIThTB8Ww



The boy least likely to..er nýbúinn að lesa "Diplomacy of Wolves". Takk fyrir lánið Soffia hans Steinars. Ætla horfa á heimildarmynd um Yusuf Islam , sem fleiri þekkja undir nafninu "Kisi Stevens.." og sofna á þessu fallega þriðjudagskvöldi.

the boy least likely to.. góða nótt

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 23:53:11 / victor blær

Litli bróðir í sumarfríi hjá pabba í florida

Litli bróðir minn, Steindór Gerard Corrigan er staddur í florida í heimsókn hjá pabba.  Gerir eflaust ekkert annað en að sleikja sólina og borða kanamat.  Þess á milli eru það heimsóknir í Bush Garden og Universal Studios.

Reyndar er ég voða stoltur af honum fyrir hvað hann er víst flinkur kafari, með súrefnis-helíum kút og allt.  Pabbi og hann voru búnir að stefna að þvi að ferðast eitthvað um bandríkjin og fara kafa eftir risa humar..er það ekki það sama og "lobster"?  Jæja, ekki laust við að ég sakni pínu "litla"  orminn og glottið hans.   Vona það sé gaman hjá ykkur bro og pops.

 

Mánudagurinn ekki einu sinni liðinn og ég var hlakka til næstu helgi.  Ástæðan er einföld.  Bjarni Fritz og einhver Hemmi vinur hans (sem á að vera snilldar kokkur, sem ég ætla læra einhverja grill punkta af) og Baldur Knúts eru búnir að skipuleggja Golf keppni í hvalfirðinum.  Spilum Texas Scramble style. (Ekki spurja mig hvað það þýðir, eina sem ég veit um gólf, er að það snýst um að líta vel út, helst hitta á sexy golf stelpur og slá hvítu kúlunni eins fast og maður getur)  Eftir Golfið, förum við vonandi að stökkva fram af Fossi , þeir sem lifa það af, fara í grill veislu í Hljómskálagarðinum...að ég held...

 En þangað til ...krakkar..njótið sumarsins....áður en við vitum af því..it ill be gone..

would you care...yep yep yep...for some bacon ...yep yep yep..

vickzzzzzz.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 20:44:26 / victor blær

Shaboinka

Hér shaboinkaz

Um shaboinkaz

Frá shaboinkaz

Til shaboinkaz

Núna kunnið þið að fallbeygja orðið "shaboinkaz". Í gærkvöldi hittumst við heima hjá mér, Óli og Eggert. Skemmtilegt spjall með góðum vinum, Corona og Vodka í sprite með jarðaberja svala. Kíktum svo aðeins niður í bæ, fyrst á Oliver að hrista rassinn við undirspil Daða DJ. Þömbuðum ísköldum Mojitos , sem var frekar gott. Nema að 2 slíkir drykkir kosta ekki nema 2800 krónur. Gjafaprís, ekki satt?

Eftir að hafa fengið nóg af Oliver, fórum við yfir á Vegó og hristum bossana aðeins meira. Hittum frænku gerta (sem ég hafði ekki hugmynd um og er víst systir Óla Stefs) sem ég hef oft séð upp í HR og vinkonu hennar. Dönsuðum til að gleyma okkur...svo fór að halla undan fæti um hálf 5 og ljóst að maður er ekki tvítugur lengur.

Á meðan ég og Eggert vorum í bænum, voru ógæfumennirnir Steinar, Helgi Skalli og Jón Arnór í giftingu hans Fannars körfuboltamanns. Ég fékk eitt fyndasta símtal sem ég hef nokkurn tímann fengið , þegar Helgi sagði mér frá hvað hefði gengið á kvöldinu áður. "Steinar neeeeei...."

Ekki nóg með að eyðileggja plaststóla á varðeldinum heldur vilja menn setja týnds korts Jóns á reikninginn hans Steinars...og bara yfir höfuð ef eitthvað vantar þá er hægt að horfa til Steinars.

Shaboinked.

ég elska alla...

Vito 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 13:06:10 / victor blær

My girlfriend said she' d leave me if I went golfing one more time. I´m sure going to miss her

Í vikunni var stórmót í körfubolta á Klambratúni..þið vitið túnið hjá Kjarvalsstöðum.  Atvinnumennirnar komu fullir sjálfstrausts, tilbúnir að valta yfir "minni"menn , eins og mig.  Þetta var eigilega bara hálft landsliðið í basket og nokkrir fyrrverandi KR ingar ásamt Einari cuz.

Ég hélt að þetta yrði bara hin mesta skemmtun og menn tæku létt á því og léku sér bara í sólinni.  Boy was I wrong.  

Ég heilsaði Helga Magg, eins og maður heislar góðum vini, " Sæll Helgi minn, mikið líturu vel út.  Jæja erum við ekki að fara skemmta okkur í körfuknattsleik?"

Helgi svaraði : "Bitch..við erum að fara rústa þér, ég er í landsliðinu"

Þá kom finnslan (betri bróðirinn af þeim þrem) og sagði "þetta er allt í lagi vito, við skulum saman sýna þessum drengjum hvar davíð keypti ölið"

Til að gera langa sögu stutta, unnum Finnslan, Jón Arnór og ég flesta leikina og áttum kemístrý sem það réð enginn við.   Þar sem Finnslan hitti short jumper af kantinum shot after shot, Jón utan á like it was raining ...like butter...og ég slashaði meira en léleg hryllingsmynd

Tvífarar

og

 

backing up...beep ....beep...beep.... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34
Dagsetning
9. febrúar 2010
Leitarbox