Litli bróðir minn, Steindór Gerard Corrigan er staddur í florida
í heimsókn hjá pabba. Gerir eflaust ekkert annað en að
sleikja sólina og borða kanamat. Þess á milli eru það
heimsóknir í Bush Garden og Universal Studios.
Reyndar er ég voða stoltur af honum fyrir hvað hann er víst
flinkur kafari, með súrefnis-helíum kút og allt. Pabbi og
hann voru búnir að stefna að þvi að ferðast eitthvað um bandríkjin
og fara kafa eftir risa humar..er það ekki það sama og
"lobster"? Jæja, ekki laust við að ég sakni pínu
"litla" orminn og glottið hans. Vona það sé gaman
hjá ykkur bro og pops.
Mánudagurinn ekki einu sinni liðinn og ég var hlakka til næstu
helgi. Ástæðan er einföld. Bjarni Fritz og einhver
Hemmi vinur hans (sem á að vera snilldar kokkur, sem ég ætla læra
einhverja grill punkta af) og Baldur Knúts eru búnir að skipuleggja
Golf keppni í hvalfirðinum. Spilum Texas Scramble style.
(Ekki spurja mig hvað það þýðir, eina sem ég veit um gólf, er að
það snýst um að líta vel út, helst hitta á sexy golf stelpur og slá
hvítu kúlunni eins fast og maður getur) Eftir Golfið, förum
við vonandi að stökkva fram af Fossi , þeir sem lifa það af, fara í
grill veislu í Hljómskálagarðinum...að ég held...
En þangað til ...krakkar..njótið sumarsins....áður en við
vitum af því..it ill be gone..
would you care...yep yep yep...for some bacon ...yep yep
yep..
vickzzzzzz.....