Don Vito
Investment Banks
03.08.2007 11:43:27 / victor blær

We were young we were dzindzin dzin something in the sun. Síðasta færslan. Farinn á www.victorblaer.com. Arrivaderci suckers.

Þá er komið að því . Síðasta færslan mín hér á blog.central.is/victorblaer. Ég og þessi síða höfum upplifað margt saman. Ekki ólík kærustu pari sem hafa farið í gegnum súrt og sætt , rifist heiftarlega eins og þegar ég skrifaði fyndustu færslu allra tíma og þegar ég ýtti á "birta færslu á vef" , gerðist ekkert. Ég var of lengi að skrifa meistarastykkið og vistaði ei það sem ég ritað hafði. Ég grenjaði úr mér augun í marga daga og hugaði að því að slíta samveruna þá þegar.

En ástin verður ekki fangað í fögrum ljóðum , súkkulaði molum (hún kemst nú ansi nálægt því ef súkkalaðið er gott og þiggjandinn er ég..nei..victor..vertu sterkari en þetta. Ekki láta kaupa þig með tælandi svarta hunangið..eins og fjöldinn allur af sírenum að kalla mig til sín..ég get ekki staðist freistingunni..) eða yfirlýstum ástarjátningum karla og kvenna sem enginn innistæða er fyrir. "Þú hefur farið yfir heimild þinni til að segja "ég elska þig. Vinsamlegast leggðu inn meiri ást. " Ef fólk fengi kvóta, ástarkvóta. Allt er þegar þrennt er, 3 er góð tala. Hún er prímtala. Já, þú fengir þrjá ástar sénsa. Eftir það, þyrftirðu að kaupa þér meiri ástarkvóta, kannski af ljótu fólki. Nei, af fólki með meiri reynslu og meiri tilfiningagreind. Svo gætum við látið kvótan ganga kaupum og sölum og jafnvel haft skilvirkan markað uppi og keypt og selt hlutabréf. Ég er viss um að allir mundi græða eins og kauphöllin virðist gera.

Ástin er tilfinning. Hjartað tekur kipp bara við tilhugsunina um manneskjuna. Og það eftir að hafa verið með manneskjunni lengur en eina sjónvarps séríu. Ég og þessi síða höfum séð ýmislegt saman. Hún hefur verið til staðar sem tjáningarmiðill minn í langan tíma. Ég elska hana.

Síðan beið mín eins og tryggur hundur sem allt fyrir mig mundi gera. Þau ykkar sem hafa ekki átt hund og upplifað tryggðartilfiningu hunds skilja þessa samlíkingu líklegast ekki. Eins og þegar Stormur hundurinn minn sem var hálfur husky og hálfur scheffer ætlaði að ráðast á eldri bekkinga sem voru að leggja mig í einelti í Norður Karolínu. Hann hoppaði yfir girðinguna í garðinum, hljóp yfir götuna eins og djöfullinn sjálfur í hundalíki og gerði sig líklegan til að rífa í sig nokkra ógæfis unglingspilta sem voru að stríða 8 ára gömlum íslenskum strák sem var farin að skæla. Ég slapp með skrekkinn og ég og Stormur fórum heim og er ég horfði í augun hans skein væntumþykkjan sem hann bar til mín og mér leið eins og ég væri á toppi tilvernunar. Enginn gat gert mér neitt, því ég átti Storm og hann var sterkasti og besti hundur í heimi.

Síðan hefur stundum leikið hlutverk therapista, er ég hef ekki geta talað um eitthvað við neinn, hef ég þótt undarlega sé, getað komið með einkahúmor sem aðeins ég fatta, varðandi það sem er að hrjá mig þá stundina, og af einhverjum ástæðum hefur það létt mér lífið og látið mér líða betur. Ég er lokuð manneskja að eðlisfari, þvi verður ekki neitað. Það tók mig langan tíma að geta treyst mínum nánustum vinum fyrir tilfiningum mínum og bara jafnvel fyrir sjálfum mér. Victor, án neinnar (ok, næstum því neinnar , hehe.) grímu. Berskjaldaður. Þannig hef ég getað verið með síðuna.

Við höfum bullað , og bullað...og bullað meira. Komið með rógburð um flest og alla sem ég þekki til. Logið eða frekari sagt skáldað margt. Þessi síða hafði ekkert sérstakt takmark þegar ég byrjaði með hana. Aðra en að ég vonaðist til að hustla út á hana. Hversu sorglegt er það, þegar maður vonast til að hitta draumakonuna í gegnum heimasíðuna sína?

My homeboys þekkja húmorinn minn og okkar strákana. Það hefur verið mikið af einkahúmor. Sem leiddi af sér enga misskilninga þegar það voru bara ég og the guys að lesa síðuna. En þegar ókunnugir fóru að hnýsast þá fóru skemmtilegir hlutir að gerast.

"Sóley Kaldal er fáviti" færslan

Þetta var einkadjók sem byrjaði með strákunum sem fóru á ProTour (árleg skemmtiferð til Jóns Arnórs körfuboltamans og golfara hvar sem hann er staddur í heiminum). Einhver úr hópnum orðaði fáranleika á þann veg að segja " að það er bara eins og að segja að Sóley Kaldal sé fáviti!". Sem er auðvitað svo fjarri sannleikanum að það verður absurd.

En, einvher vinkona Sóleyar, las bara titilinn á færslunni og hringdi í Sóley og sagði " yo biatch..veistu hvað (ok hún sagði sæl vinkona , en hitt er satt) Victor skrifaði, hann kallaði þig fávita!!"

"Ég og Sóley eigum von á tvíburum"

Þessi segir sjálft. En ef þið þekkið mig og hana ekki, gætu þið trúið þessu. Sóley er systir eins besta vins míns og yrði ég sennilega myrtur við það eitt að líta á hana þeim augum. Sem stoppar mig og Snata samt ekkert að grínast með það hægri og vinstri. Sóley á auk þess frábæran kærasta sem heitir Kobi og er með læri jafn þykk og kálfarnir mínir. Og síðast en ekki síst, vil ég ekki verða faðir fyrir en ég hef lokið framhaldsnámi og með allt klárt. Sonur/dóttir mín verða sko enginn lausaleiksbörn.

Hérna er nokkrar gamlar færslur

Febrúar 2006. Sjáið Valda þarna fyrir aftan. Sérstök mynd.

Einhver spurði hvort ég væri með krippu. Ég lét eins og það skipti mig ekki máli. Svo grét ég mig í svefn um nóttina.

jarðeðlisfræði hetjan mín Hjálmar og ég

Crunk Partyið góða

ég týndi klútnum hans steinars og sé ennþá eftir því

ég og kærastan mín þá..

þegar ég laug því að ég og Garðar thor værum byrjaðir saman.takið eftir flotta skegginu mínu.

Meiriháttar mynd.. Mannstu eftir þessu Steinar ?

fáranlega fyndin dagur...bíómyndastuff... raunveruleikinn er stundum ótrúlegur...Markús Máni, Victor Blær, Kristín, Davíð, Elfa og Ylfa.

Gaman að segja frá því, að þarna var Kristín ennþá í grunnskóla. Ég og hún vorum að skjóta eitt atriði saman, sátum þétt að hvort öðru og hún var pinu stressuð. Svo ég reyni að gera þetta léttara fyrir hana með smá tjitt tjatti..og segi m.a. hvað á að gera í kvöld, bíó eða bara chill? Og hún svarar...vandræðalega og hvíslar.."..öö..ég er sko að passa í kvöld þannig ég kemst ekki , seinna kannski?"

gardínur..

snilldar kvöld með félögum heima hjá gerta..þetta er jón sem liggur ofan á öllum

sokka fetish Skallanns (sorry helgi minn..)

Snati braut tréið sem sést þarna í bakgrunni stuttu síðar

ég komst á kallarnir.is

óli skálaði í snakk skál..eggert bara alveg sáttur

ég setti þessa mynd á síðuna, og stefaní frænka eggerts kommentaði í fyrsta sinn á síðuna mína og sagði stopp, hingað og ekki lengra. Tepru genið virðist því ættgengt í þessari familu

06.06.2006 fór í skemmtilegu húsafells ferð

ég kynnstist Jessicu Alba

Eggert cuz náðist á dansiballi að dansa með glowstick..(u know æ luv u..eggi)

ursula amma átti afmæli (mynd frá gamlárskvöldi)

ég ritaði grein í mogganum sem andsvar við danske bank sem hét "Morgunblaðið og viðbrögð fjármálamarkaðarins" (góða myndin)

29.03.2006 10:11:06

R.I.P. Eilífur "Góbi" Hammond f. 23 desember 1979 d. 27 mars 200.

Án efa mesti sorgardagur minn síðan skilnaður mömmu og michael pabba. Gobi lést við störfum á Kárahnjúkavirkjun.

Horfi á þessa mynd dögum saman til að hressa mig við. Það virkar.

Fæ þessa mynd af tískó , góðu og konu tísko...yndisleg

bróðir mömmu sem er sjómaður tók þessar myndir

 

Steinar og ég að gangi niður laugaveginn. Óli var í fýlu

Ég flutti inn til Úrsulu. Uppúr hófst stríð milli hennar. Sem hún vann. Því þegar við fórum út meðal almennings saman, sagði hún alltaf hátt svo allir heyrðu til " Afhverju ertu svona vondur við mig ungi maður?!!?"

hún píndi mig

ég sendi stelpu "gefðu mér annan séns " bréf. Hún sýndi hálft ísland. Mér fannst það lélegt. Fyndið í dag.

ég hitti þessa stelpu, varð dolfallinn. Fékk aldrei að vita hvað hún heitir.

feitikallinn bað mig um að pósa..helvetes feiti kall ..lol

óli gifti sig

ég lærði á gítar

snati sem batman

ég og ursula þökkum ykkur samveruna lesendur góðir

þessi mynd var tekin í partínu hans jóns viðars. Ekkert merkileg nema fyrirþær sakir, að þegar ég verð forstjori veit ég að myndin verður grafin upp. He he.

snati líkti mig við bin laden . hélt síðan ég hefði farið i fýlu og var alveg miður sín.

jón minnir mig á Ingu litlu frænku

Steinar pantaði sér breezer á barnum eins og vanalega..og hjalti var ekki sáttur við þjónustuna

ég fann tvífara James Dean..Arnar frændi

sumir dönsuðu upp á bar borðinu á prikinu

ég eyddi mörgum kvöldum með úrsulu , eldaði meirisegja bjúgur með uppstúf sem er uppáhaldsmaturinn minn

Árni graffari fór til Finlands í skiptinám, en þessi mynd er frá ítaliu.

djammaði með waldo..og reyndi ennþá að pulla skeggið..óli sagði mér að raka það af.. ég var að fýla það..

Steinar sást æ oftar með rauðan breezer. kemur ekki lengur á óvart

Bjarni og Tinna eignuðust frábæran lítil strák , Baby B. Ekki það að ég þoli börn.

Steinar og Soffía ófrísk , og Snati og Góða.

Ég varð ástfanginn af Adriana Lima. Sem er ..da bomb.

 

Ég þakka ykkur öllum fyrir samfylgdina. Ég og síðan skiljum sátt. Ég mun héðan í frá halda áfram að rugla, plata, ljúga, tjá, fræða og pæla á síðunni www.victorblaer.com.

Victor eldri

og Victor Blær jr. Þakka fyrir sig.

In the end we are all separate , our stories, no matter how similiar , come to a fork and diverge. We are drawn to each other because of our similarities, but it is our differences we must learn to respect.

In my end is my beginning-Ts Elliot.

kær kveðja vinir og ókunnugir

Victor Blær.

 


 

 

 

Visitalan skrifaði
góður lokapistill. Ýmislegt sem rifjaðist upp. hættu að klína breezer á mig...eða er það of seint? takk fyrir skemmtilega síðu.
Victor skrifaði
þakka þér fyrir Vísitala, þakka þér fyrir...´þú einn elskar mig :) sé þig á hinni síðunni
Einar skrifaði
This is nt the end my friend...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
22. mars 2010
Leitarbox